Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR

14.9.2026 - Nóg komið af klakfiskum


Nóg komið af klakfiskum

Ágætu veiðimenn,

Sú ánægjulega staða er komin upp að við höfum nú fengið alla þá fiska sem við þurfum í klak þetta haust.

Þeir sem eiga eftir að veiða í ánni það sem eftir er tímabilsins eru því vinsamlegast beðnir um að setja ekki fleiri fiska í kisturnar við ána eða í karið við Draflastaði, heldur sleppa öllum fiskum aftur í ána svo þeir geti tekið þátt í náttúrulegri hrygningu.

Við viljum jafnframt færa öllum þeim sem lögðu okkur lið við söfnun fiska í klak kærar þakkir fyrir aðstoðina og gott samstarf.