Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR

Fnjóská - Illugastaðir


Fnjóská - Illugastaðir

Fnjóská - Illugastaðir (Silungur)


Fnjóská er 117 km löng bergvatnsá sem á upptök sín í Bleiksmýrardrögum og er ein vatnsmesta bergvatnsá landsins. Lax og sjóbleikja eru uppistaðan í veiðinni, en einnig veiðast í ánni urriði og staðbundin bleikja.

Illugastaðasvæðið, eða svæði 5, nær frá merkjum ofan við Hólmabreiðu, veiðistað 68, og upp að ármótum Bakkaár og Fnjóskár rétt neðan við bæinn Reyki. Merktir veiðistaðir eru nr. 69–80 og þaðan er svæðið ómerkt upp að Bakkaá.

Veiðitímabilið er frá 8. júlí til 31. ágúst. Seldar eru 2 stangir í heilum dögum og eru þær eingöngu seldar saman.

Veiðireglur

Eingöngu er heimilt að veiða á flugu með flugustöng. Öllum laxi, bleikju og sjóbirtingi skal sleppt aftur. Veiðimönnum er heimilt að taka staðbundinn urriða í soðið.

Veiðitími dagsins er frjáls, en hann er að hámarki 12 klukkustundir á bilinu kl. 07:00–00:00 á veiðidegi.


Veiðihús

Ekkert veiðihús fylgir veiðileyfum á Illugastaðasvæðinu.


Annað

Veiðimenn eru beðnir um að loka alltaf hliðum á eftir sér og aka ekki um tún eða ótroðnar slóðir nema með leyfi landeigenda. Einnig eru veiðimenn beðnir um að sýna landeigendum og öðrum veiðimönnum tillitssemi, ganga vel um landið og skilja ekki eftir rusl við ána.


Skilmálar

Kaupendur veiðileyfa skuldbinda sig til að fylgja veiði- og umgengnisreglum og skrá alla veiði í rafræna veiðibók á heimasíðu okkar. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.