Við notum vafrakökur til að greina upplýsingar um notkun vefsíðunnar til að bæta efni og birta markaðsefni. Nánar um vafrakökur LEYFA VAFRAKÖKUR

Fnjóská - Bleiksmýrardalur


Fnjóská - Bleiksmýrardalur

Fnjóská - Bleiksmýrardalur (Silungur)


Bleiksmýrardalur er efsta veiðisvæði Fnjóskár og tekur við þar sem áin leitar inn í hinn langa og afskekkta dal sem hún á upptök sín í. Fnjóská fylgir Bleiksmýrardal, vestasta afdal Fnjóskadals, og á upptök sín í Bleiksmýrardrögum.

Svæðið er fyrst og fremst silungasvæði þar sem umhverfið er víðáttumikið, kyrrlátt og afskekkt, og hentar vel þeim sem vilja létta og rólega fluguveiði í fallegri náttúru.

Veiðitímabilið er frá 20. júlí til 31. ágúst. Seldar eru 2 stangir í heilum dögum og eru þær eingöngu seldar saman.

Veiðireglur

Eingöngu er heimilt að veiða á flugu með flugustöng. Öllum laxi, bleikju og sjóbirtingi skal sleppt aftur. Veiðimönnum er heimilt að taka staðbundinn urriða í soðið.

Veiðitími dagsins er frjáls, en hann er að hámarki 12 klukkustundir á bilinu kl. 07:00–00:00 á veiðidegi.


Veiðihús

Ekkert veiðihús fylgir veiðileyfum á Bleiksmýrardalssvæðinu.


Annað

Veiðimenn eru beðnir um að loka alltaf hliðum á eftir sér og aka ekki um tún eða ótroðnar slóðir nema með leyfi landeigenda. Einnig eru veiðimenn beðnir um að sýna landeigendum og öðrum veiðimönnum tillitssemi, ganga vel um landið og skilja ekki eftir rusl við ána.


Skilmálar

Kaupendur veiðileyfa skuldbinda sig til að fylgja veiði- og umgengnisreglum og skrá alla veiði í rafræna veiðibók á heimasíðu okkar. Veiðileyfi eru ekki endurgreidd.